Aðsetur: 
Félagsheimilið Kjarni, Kjarnaskógi
Netfang: 
Kennitala: 
                                 

NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG AKUREYRAR


Orðspor af hugsjón Jónasar Kristjánssonar læknis, frumkvöðuls Náttúrulækningastefnunnar á Íslandi, hafði borist til Akureyrar, og vakið umtal og áhuga. Þann 27. ágúst árið 1944, kom hann ásamt Birni L. Jónssyni veðurfræðingi, síðar lækni, og þáverandi varaforseta NLFÍ til fundar á Akureyri í þeim tilgangi að stofna náttúrulækningafélag á Akureyri.

Björn og Jónas héldu erindi um tilgang og stefnu NLFÍ, og fundarmenn samþykktu stofnun Náttúrulækningafélags Akureyrar sem varð deild í Náttúrulækningafélagi Íslands. 58 manns innrituðust í félagið á stofnfundinum, flestir hafa félagarnir orðið um 300 en eru um 150 í dag.

 

Fyrstu þrjá áratugina mótaðist starfsemi NLFA ekki hvað síst af því að vekja áhuga bæjarbúa á þýðingu heilsufæðis, í því skyni var sett upp verslun með heilsuvörur og keypt kornmölunarvél sem malaði allt að níu tonnum af korni á ári. Á þessum árum lagði félagið jafnframt ýmsum fjáröflunum NLFÍ lið, en þá var verið að safna fé til uppbyggingar Heilsuhælisins í Hveragerði. Árið 1979 var fyrsta skóflustungan tekin að byggingu heilsuhælis á Norðurlandi, enda þá komið vilyrði heilbrigðisyfirvalda um þjónustkaup.

Fjórtán árum síðar, eða um haustið 1993 er stórhýsið Kjarnalundur risið og þar haldið landsþing NLFÍ. Vorið 1994 og næstu fimm sumur þar á eftir, var byggingin leigð út til hótelrekstrar, enda fullreynt að heilbrigðisyfirvöld stóðu ekki þegar til kom, við marggefin fyrirheit sín um þjónustukaup. Haustið 1998 var Kjarnalundur leigður Akureyrarbæ til sex ára, og rekur bæjarfélagið þar nú glæsilegt elliheimili.

Kjarnalundur var seldur árið 2004 og hófst þá undirbúningur að byggingu félagsheimilis NLFA.    4.nóvember 2006 var félagsheimilið NLFA  vígt með glæsibrag. Fjöldi gesta samglöddust NLFA á þessum tímamótum enda er húsið og umhverfi þess allt hið glæsilegasta.  Félagsheimili NLFA sem hefur hlotið nafnið Kjarni kemur til með að þjóna starfsemi félagsins auk útleigu til félagasamtaka og einstaklinga.

 

Stjórn NLFA:

  • Anna Svava Traustadóttir formaður 
  • Lísbet Vala Snorrdóttir varaformaður
  • Guðlaug Kristinsdóttir ritari
  • Sigrún Daðadóttir gjaldkeri
  • Stefán Jóhannesson meðstjórnandi

Varamenn

  • Hulda Eggertsdóttir
  • Líney Helgadóttir