Aðsetur: 
Laugavegur 7
Sími: 
552 8191
Fax: 
561 8191
Netfang: 
Kennitala: 
opnunartimi: 
9 - 12 alla virka daga
                                 

NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG ÍSLANDS


Boðað var til stofnfundar í Varðarhúsinu í Reykjavík 24. janúar 1939. Jónas Kristjánsson læknir setti fundinn og skýrði frá tilefni hans. Fundarmenn voru 30 að tölu og gerðust allir stofnendur félagsins. Í stjórn voru kosnir þessir: Forseti Jónas Kristjánsson læknir, varaforseti Sigurjón Pétursson verksmiðjueigandi, og meðstjórnendur Sigurður Björnsson frá Veðramóti í Skagafirði, Hjörtur Hansson kaupmaður og Axel Meinholt kaupmaður. Félagsstofnunin á Sauðárkróki 1937 var því vísir að stofnun félagsins í Reykjavík. Félagið á Sauðárkróki lagðist nú af en þeir sem það stofnuðu gengu í hið nýstofnaða félag. Nokkrum árum síðar var Náttúrulækningafélag Sauðárkróks stofnað en það starfaði ekki lengi.

Fyrstu árin var starf félagsins aðallega fólgið í mánaðarlegum fundum að vetrinum en á sumrin voru farnar göngu- eða grasaferðir. Þá voru haldnir útbreiðslufundir. Jónas Kristjánsson og ýmsir aðrir fluttu erindi um manneldismál og önnur heilbrigðismál, ræktun ofl. Fljótlega var byrjað að sýna stuttar fræðslukvikmyndir á fundum félagsins. Bókaútgáfa kom fljótlega til en árið 1948 hafði félagið gefið út 7 bækur. Tímaritið Heilsuvernd byrjaði að koma út 1946 undir ritstjórn Jónasar Kristjánssonar en tveimur árum síðar voru áskrifendur 1600 talsins. Matstofa félagsins tók til starfa 22. júní 1944 að Skálholtsstíg 7 en þar var um mikið brautryðjendastarf að ræða á sviði fæðissölu og mataræðis. Í ársbyrjun gekkst félagið fyrir því, að stofnað var hlutafélagið Gróska til kaupa á gróðurhúsum í Laugarási í Biskupstungum, með það fyrir augum að framleiða grænmeti handa matstofunni og félagsfólki. Stofnun heilsuhælis var frá upphafi aðaláhugamál náttúrulækningamanna. Heilsuhælissjóður var stofnaður 19. mars 1944. Félagið keypti jörðina Gröf í Hrunamannahreppi fyrir væntanlegt heilsuhæli 20. nóvember 1946 og seldi þá um leið eignir sínar í Laugarási. Gröf var síðan seld þegar ákveðið var að reisa heilsuhæli í Hveragerði en það tók til starfa 24. júlí 1955.

Náttúrulækningafélag Íslands starfaði sem sjálfstætt félag fram til 15. nóvember 1949 en þá var á framhaldsaðalfundi félagsins ákveðið að breyta nafninu í Náttúrulækningafélag Reykjavíkur. Samhliða varð Náttúrulækningafélag Íslands að bandalagsfélagi milli náttúrulækningafélaga í landinu en samtökin halda landsþing sitt á tveggja ára fresti. Fyrsti forseti bandalagsins var kosin Jónas Kristjánsson læknir. Varaforseti Björn L. Jónsson þáverandi veðurfræðingur en síðan læknir og yfirlæknir Heilsuhælisins í Hveragerði. Meðstjórnendur voru Hjörtur Hansson, Martein Skaftfells og Steindór Björnsson.

Stjórn NLFÍ:

  • Gunnlaugur K. Jónssson forseti
  • Geir Jón Þórisson varaforseti
  • Ingi Þór Jónsson ritari
  • Bjarni Þórarinsson meðstjórn
  • Anna Svava Traustadóttir gjaldkeri

 

Fræðslunefnd NLFÍ:

  • Ingi Þór Jónsson formaður
  • Sigrún Jóna Daðadóttir ritari
  • Magna Fríður Birnir meðstjórn
  • Björg Stefánsdóttir meðstjórn
  • Ingibjörg Kjartanasdótti meðstjórn