Krúska, verslun og matstofa NLFÍ, Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík


Stefna og markmið

"Berum ábyrgð á eigin heilsu"

Krúska er verslun og matstofa sem býður upp á úrval grænmetis, kjúklinga og fiskrétta, auk þess sem seldar er vottaðar lífrænar afurðir.
Lífrænt hráefni er notað í matargerð, ekki hvítt hveiti, hvítur sykur, auka-og/eða bragðefni.

Hrásykur er einungis notaður í eftirrétti.


Krúska upplýsir um innihald í allri framleiðslu.

Krúska hefur ekki á boðstólum vörur sem vitað er að innihalda erfðabreytt matvæli.
Krúska mun taka þátt í að efla fjölbreytni í lífrænni ræktun á Íslandi í samvinnu við bændur og vill verða leiðandi fyrirtæki í þróun og framreiðslu á hollum og góðum mat.

Krúska mun leggja sitt af mörkum til fræðslu m.a. með námskeiðshaldi og fræðandi heimasíðu.

Þar má finna matseðil vikunnar slóðin er www.kruska.is

Krúska er í góðri samvinnu við bændur sem stunda lífræna ræktun.

Krúska er í eigu Náttúrulækningafélags Íslands, NLFÍ.


NLFÍ var stofnað árið 1937 og hefur m.a. stuðlað að því að almenningur hafi aðgang að hollum og góðum mat. Megintilgangur félagsins er ,,Að efla og útbreiða þekkingu á lögmálum heilbrigðs lífs og á heilsusamlegum lifnaðarháttum".

Snemma á síðustu öld hóf NLFÍ innflutning á hollustuvörum og rak frá árinu 1944 matstofu með grænmetisfæði í nokkra áratugi.

Opnun verslunar- og matstofunnar Krúsku er einn þáttur í framþróun félagsins.

Stefna og markmið

Berum ábyrgð á eigin heilsu