Fjölmenni á 60. ára afmæli NLFR
Stjórn NLFR er afar ánægð með hve margir gestir komi til afmælisfagnaðarins sem haldinn var á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Gleði og ánægja var meðal gesta og gaman að sjá hversu margir af eldri félagsmönnum komu. Margir gestir nýttu sér að frítt var í baðhúsið Kjarnalund í tilefni dagsins. Minningarherbergi frumkvöðulsins Jónasar Kristjánssonar læknis var til sýnis. Barnabarn hans Regína M. Birkis fór þar yfir lífshlaup afa síns á lifandi og skemmtilegan hátt.
Stjórn þakkar öllum sem komu og óskar félagsmönnum sínum og velunnurum alls hins besta.





