60. ára afmæli Náttúrulækningafélags Reykjavíkur sunnudaginn 15 nóvember 2009
Haldið verður uppá afmælið á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði á afmælisdaginn
sunnudaginn 15. nóvember 2009 kl. 15:00.
Tekið verður á móti boðsgestum við anddyri matsalar.
Dagskráin verður létt og skemmtileg, flutt ávörp, boðið uppá veitingar að hætti hússins og skoðunarferðar um stofnunina.
Minningarherbergi Jónasar Kristjánssonar læknis verður til sýnis og frítt í baðhús HNLFÍ í tilefni dagsins.
Allir gestir fá afmælispakka.
Söguágrip
Náttúrulækningafélg Reykjavíkur var stofnaðí Reykjavík árið 1949. Fyrsti formaður þess var Björn L. Jónsson veðurfræðingur og síðar yfirlæknir Heilsustofnunar NLFÍ. Starf félagsins hefur alla tíð snúist fyrst og fremst um að, "efla og útbreiða þekkingu á lögmálum heilbrigðs lífs og heilsusamlegum lifnaðarháttum".





