Ræktun erfðbreyttrar plantna á Írlandi verður bönnuð með öllu samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar landsins nýverið
Náttúrulækningafélag Íslands fagnar þessu framtaki Íra, en félagið er yfirlýst alfarið á móti útiræktun erfðabreyttra planta eins og kemur fram í ályktun frá Landsþingi NLFÍ sem haldið var í september sl. og birt er hér á síðunni.
Umhugsunarvert er að á Íslandi er ræktað erfðabreytt bygg utandyra í einu blómlegasta landbúnaðarhéraði landsins, með leyfi frá Umhverfisstofnun sem veitt var sl. vor.
Íslendingar skera sig úr hvað þetta varðar því mörg Evrópulönd og fjöldi fylkja og héraða víða um heim hafa lýst sig "svæði án erfðabreyttra lífvera".
Íslendingar skera sig einnig úr hvað varðar merkingar á vörum sem innihalda erfðabreyttar afurðir. Hér á landi hefur ekki verið lögleidd tilskipun ESB um merkingar sem er óþolandi seinagangur og alls óviðunandi fyrir neytendur.





