Ályktanir 32. Landsþings NLFÍ haldið 19. september 2009 á Heilsustofnun NLFÍ 2


 

Erfðabreytt ræktun á Íslandi   

Landsþing Náttúrulækningafélags Íslands fordæmir það ábyrgðarleysi íslenskra stjórnvalda að heimila útiræktun á erfðabreyttu lyfja- og iðnaðarbyggi í Gunnarholti á Rangárvöllum, einu blómlegasta landbúnaðarhéraði landins. Landsþing NLFÍ átelur að Umhverfisstofnun hafi veitt heimild til þessarar áhættusömu ræktunar án þess að  gera fullnægjandi mat á umhverfis- og heilsufarsáhrifum hennar. Landsþingið telur brýnt að áður en slíkar ákvarðanir eru teknar fari fram víðtæk umræða meðal almennings um félagsleg og siðferðileg álitamál erfðabreytinga og þá áhættu sem tekin er með sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Landsþingið varar við þeirri hættu sem slík ræktun hefur í för með sér fyrir ímynd og hreinleika Íslands og opinber markmið um sjálfbæra þróun.

 

Náttúrulækningafélag Íslands hefur ásamt sex öðrum samtökum (Dýraverndarsambandi Íslands, Náttúruverndarsamtökum Suðurlands, Neytendasamtökunum, Matvæla- og veitingafélagi Íslands, Slow Food Reykjavík og Verndun og ræktun  félagi framleiðenda í lífrænum búskap) lagt fram stjórnsýslukæru til Umhverfisráðherra á ákvörðun Umhverfisstofnunar. Þar er þess krafist að áðurnefnt leyfi sem stofnunin veitti ORF Líftækni hf. þann 22. júní verði fellt úr gildi.

 

Innihaldslýsingar

Náttúrulækningafélag Íslands leggur sérstaka áherslu á að íslensk stjórnvöld taki nú þegar upp tilskipun EES í íslensk lög um merkingar á matvælum sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum og afurðum þeirra. NLFÍ hvetur til strangra viðurlaga við upplýsingafölsun á umbúðum

Almenningur á skýlausan rétt á því að vita hvað hann leggur sér til munns.

 

Lífræn framleiðsla

Náttúrulækningafélag Íslands hvetur til notkunar lífrænna aðferða í matvæla- og náttúruvöruframleiðslu og neyslu lífrænna afurða, meðal annars á barnaheimilum, í skólum, á heilbrigðisstofnunum og í mötuneytum vinnustaða.

NLFÍ bendir á að þeim vísindalegu rannsóknum fjölgar ár frá ári sem benda til þess að lífræn framleiðsla sé hagkvæm, hafi jákvæð áhrif á lífríki og umhverfi, og stuðli að betri næringu og heilsufari. NLFÍ bendir á að Íslendingar standa grannþjóðum sínum langt að baki á þessu sviði, þótt aðstæður til lífrænnar framleiðslu séu að mörgu leyti betri hér á landi en annars staðar. NLFÍ harmar áhugaleysi íslenskra stjórnvalda og bændasamtaka um þróun lífrænnar ræktunar á Íslandi.  Þá furðar NLFÍ sig á þeirri áherslu sem lögð hefur verið á svonefnda vistvæna ræktun undanfarin ár, sjónhverfingu sem nýtur engrar viðurkenningar á alþjóðamarkaði matvæla og gerir ekki annað en að grafa undan þróun lífrænnar ræktunar á Íslandi.

 

 

 

 

 

 

Blekkiauglýsingar

Náttúrulækningafélag Íslands lýsir megnri andúð á hvers konar auglýsingum á miður hollum neysluvörum, sem aðallega er beint að börnum og unglingum. Þessar auglýsingar hvetja til neyslu á varningi sem inniheldur mikið af viðbættum sykri og öðrum óæskilegum efnum. Þær stangast þannig á við almenn manneldismarkmið og stefnu félagsins, þótt þær gefi oft hollustu í skyn. Neysla þessa varnings getur mótað heilsu barna og unglinga til framtíðar og meðal annars leitt til ólæknandi offitu, sykursýki og ofvirkni. Þingið hvetur foreldra og forráðamenn barna til að vera á varðbergi gegn þessum óábyrgu auglýsingum.

 

Mataræði barna í grunnskólum     

Náttúrulækningafélag Íslands hvetur íslensk stjórnvöld til að tryggja börnum hollt fæði í öllum grunnskólum landsins. Rannsóknir sýna tengsl á milli holls og góðs mataræðis og námsárangurs því ættu allir grunnskólar á Íslandi að bjóða fjölbreytta fæðu öllum börnum að kostnaðarlausu.

 

Sykur

Náttúrulækningafélag Íslands hefur áratugum saman varað við sífellt vaxandi sykurneyslu Íslendinga. Lengi hefur verið vitað, að ofneysla sykurs hefur almennt slæm áhrif á heilsu og veldur sérstökum vandamálum á borð við tannskemmdir og sykursýki.   NLFÍ vekur sérstaka athygli á, að 99% þurrefnis í gosdrykkjum er viðbættur sykur; að kex er 17-19% viðbættur sykur og kökur 21-28%; að 3-47% innihalds morgunkorns er viðbættur sykur. Unnar mjólkurvörur,sem kenndar eru við skóla og ávexti, hafa 6-10% viðbættan sykur, viðbættur sykur er í nánast öllum pakka-, dósa- og glasamat í matvöruverslunum, þ.m.t. ungbarnamat. NLFÍ hvetur til að undantekningalaust verði skylt að tilgreina magn viðbætts sykurs á umbúðum matvæla sem seld eru hér á landi.

 

Tóbak

Náttúrulækningafélag Íslands og stofnendur þess hafa mælt gegn tóbaksneyslu í yfir 80 ár, lengst af fyrir daufum eyrum. Ekki er lengur véfengt að mikið heilsutjón stafar af neyslu tóbaks. Það liggur í augum uppi  að ef tóbak kæmi á markað í dag þá væri litið á

efnið sem hættulegt fíkniefni, fíkniefni sem yfirvöld myndu ekki undir neinum kringumstæðum  heimila innflutning á. NLFÍ hvetur stjórnvöld til að taka skrefið til fulls og sýna afgerandi fordæmi sem eftir yrði tekið í alþjóðasamfélaginu og banna með öllu innflutning tóbaks og notkun þess og meðhöndla brot á slíku banni með sama hætti og ólöglegan innflutning á fíkniefnum.

 

 

Umhverfi

Náttúrulækningafélag Íslands minnir á að hreint náttúrulegt umhverfi er mikilvægur þáttur í heilsu fólks, eins og lífræn náttúruleg fæða. Fólk þarf að geta stundað heilbrigt útilíf í eðlilegu umhverfi og hafa aðgang að ósnortnum víðernum. NLFÍ er andvígt því, að stórbrotinni náttúru landsins og lífinu í sjónum umhverfis það sé fórnað á altari gróðahyggjunnar.