Krúska - ný verslun og matstofa
Náttúrulækningafélag Íslands hefur stigið fram ásamt Helgu Mogensen og opnað verslun og matstofu á Suðurlandsbraut 12 í Reykjavík.
NLFÍ er frumkvöðull í verslun og innflutningi á hollustuvörum og opnaði t.a.m. matstofu að Skálholtsstíg 7 í Reykjavík árið 1944.
Í versluninni og matstofunni Krúsku á Suðurlandsbraut 12 er lögð áhersla á tilbúna grænmetis og kjúklingarétti, salöt og meðlæti til að taka með heim. Einnig ljúffengir heitir réttir dagsins ásamt matarmiklum súpum með nýbökuðu brauði.
Lífrænar vörur eru seldar í versluninni og er þar meðal annars hægt að fá heilsute og grænmeti frá HNLFÍ.
Félagsmenn NLFR og NLFA fá sérkjör gegn framvísun gildra félagsskírteina.
Krúska er opin sem hér segir:
Mánudaga-föstudaga 11:00-19:00
Laugardaga 11:00-15:00
Suðurlandsbraut 12
Sími: 557 5880





