Að láta töfrana haldast eftir að við erum orðin foreldrar.
Frá málþingi NLFÍ sem haldið var í Laugarsal, World Class í Laugum 4. nóvember sl.
Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskylduráðgjafi hjá ÓB-ráðgjöf fjallaði um mikilvægi þessa að láta töfrana haldasta eftir foreldrahlutverkið. Efnið sem hann notaði var hluti af námskeiðinu, Barnið komið heim sem Reykjavíkurborg og Kópavogur bjóða verðandi foreldrum og foreldrum ungra barna þeim að kostnðarlausu.
Markmiðið námskeiðsins er að hjálpa pörum að læra rannsóknastuddar aðferðir til að viðhalda ánægju og hamingju í sambandinu eftir barneign. Þau læra um fjórar ástæður þess að sambönd eiga oft erfitt uppdráttar (og hvernig hægt er að forðast það). Pörin kynnast einnig eiginleikum heilbrigðs sambands og læra sex aðferðir til að halda sambandinu sterku. Námskeiðið getur fært þeim færni sem nauðsynleg er til að setja sambandið í öndvegi, sem svo aftur styrkir tengslin milli foreldra og barnsins (barnanna) allt frá upphafi
Að láta töfrana haldast eftir að við erum orðin foreldrar
Námskeiðið ,,Barnið komið heim" er forvarnarmiðað verkefni sem byggt er á vísindalegum grunni. Rannsóknir hafa sýnt að ein besta forvörnin í geðheilbrigðismálum er að gera foreldra betur í stakk búna til að takast á við foreldrahlutverkið. Allt að helmingur verðandi mæðra þjáist af kvíða og þunglyndiseinkennum. Rannsóknir sýna að tilfinningaþroski barns mótast af samskiptum foreldra við það og ekki síst þátttöku föður í lífi þess fyrstu árin. Hæsta tíðni sambúðarslita á Íslandi er á fyrstu árum eftir barnsburð.
Algengt er samkv. rannsóknum að feður séu óöryggir í sínu fyrsta foreldrahlutverki. Verðandi feður þurfa fræðslu til að takast á við þetta óöryggi og til að axla ábyrgð á uppeldi barna sinna. Verkefnið leiðbeinir foreldrum sem eru á leið inn í foreldrahlutverkið og vilja byggja upp sterka og heilbrigða fjölskyldu. Bæði feður og mæður sem hafa tekið þátt í námskeiðinu hafa öðlast meira innsæi í þarfir barna sinna og bregðast betur við sem umönnunaraðili. Þetta átti sérstaklega við um feður.
Rannsóknir dr. Johns Gottman á því hvað einkennir góð sambönd hafa leitt í ljós tvenns konar sambönd: Þau sem ganga og þau sem ganga ekki. Hvert er leyndarmálið við gott samband sem endist? Hvað geta pör gert til að samband þeirra verði varanlegt?
Tilgangur
Markmið þessa námskeiðs er að kenna pörum aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt gagnlegar til að viðhalda ánægju í sambandi eftir að barn kemur til sögunnar. Fjallað verður um ástæður erfiðleika í samböndum (og hvernig er hægt að forðast eða takast á við erfiðleika). Þið munuð kynnast einkennum heilbrigðs parsambands og læra leiðir til að styrkja samband ykkar enn frekar. Það getur bætt tengsl ykkar við barnið og þannig orðið því gott veganesti.
Námskeiðið Barnið komið heim getur breytt gangi mála til hins betra og til frambúðar með því að aðstoða foreldra við að tengjast hvort öðru á ný, læra virk samskipti og tileinka sér færni í að jafna deilur. Þannig stuðlar það að heilbrigðu sambandi foreldranna á meðan þeir eru að tengjast ungu barni sínu. Þetta námskeið, sem snýst um næmi og svörun í foreldrahlutverkinu, stuðlar að því að börn þroskist á heilbrigðan hátt tilfinningalega, félagslega, vitsmunalega og líkamlega.
Dr. John Gottman hefur skoðað í næstum fjóra áratugi hvað það er sem heldur samböndum gangandi. Hann hefur tekið eftir tvenns konar pörum: þeim sem eru farsæl og þeim sem mistekst. Pörin sem halda saman og eru tiltölulega hamingjusöm eru þau sem eru farsæl. Þau sem slíta samvistum eða halda saman en líður illa eru pörin sem mistekst. Hvert er þá leyndarmálið við farsælt samband? Hvernig er hægt að vera viss um að sambandið muni endast? Hið augljósa og rökrétta svar er að tengjast, tengjast og tengjast. Ástarsamband verður til þegar tengsl myndast milli tveggja manneskja og því liggur beint við að dýpka þessi tengsl til að láta sambandið haldast .
Hvaða áhrif hefur það á börnin þegar töfrarnir haldast?
Barneignir eru ekki alltaf neikvæðar fyrir foreldrana. Samkvæmt rannsóknum dr. Gottman á breytingunni í foreldrahlutverkið var raunar þriðjungur para jafnánægð eða jafnvel hamingjusamari eftir að hafa eignast barn. Við vitum að börn blómstra í fjölskyldum þar sem foreldrarnir eru í góðu sambandi, þegar báðir foreldrar finna öryggi og þegar sambandinu er sinnt sem skyldi. Þegar svo er og samband foreldranna er hamingjuríkt þá gengur börnunum betur í skóla, eru við betri líkamlega heilsu og sýna meiri tilfinningatengsl við báða foreldra. Þau börn hafa einnig jákvæðar fyrirmyndir til að læra að rækta heilbrigð sambönd í eigin lífi.
Kópavogsbær og Reykjavíkurborg bjóða upp á sex vikna námskeið, hannað af hjónunum og sálfræðingunum John og Julie Gottman. Gottman hjónin eru í forystusveit á heimsvísu í vísindarannsóknum á hjónabandinu, parsamböndum og fjölskyldunni.
Námskeiðið hjálpar til við að undirbúa verðandi foreldra og foreldra barna á fyrsta ári fyrir eitt mikilvægasta verkefni lífsins - Að ala upp barn.
Börn á fyrsta aldursári eru velkomin með foreldrum sínum.
Barnið komið heim námskeiðinu er ætlað að hjálpa væntanlegum foreldrum og foreldrum ungra barna að viðhalda og efla parasambandið samhliða foreldrahlutverkinu. Rannsóknir hafa sýnt að sjö af hverjum tíu foreldrum upplifa minni ánægju í parsambandinu fyrstu þrjú árin eftir fæðingu barns.
Námskeiðið er frítt fyrir verðandi og nýorðna foreldra í Kópavogi og í Reykjavík. Kópavogsbær og Reykjavíkurborg kosta námskeiðin en framkvæmd þeirra er í höndum
ÓB-ráðgjafar.
Námskeiðið er tólf klukkustundir, tvær klukkustundir í senn, einu sinni í viku í sex vikur og byrja í næstu viku.
Að loknu námskeiði verður boðið upp á léttan og hollan kvöldverð fyrir þá sem vilja.
Nánari upplýsingar á vefsetrinu www.barnidkomidheim.net





